Órökviss og ástæðulaus ótti
Kósýheit heima
Kraftaverk lífsins- Varúð! Verí korný ;-)
A bit of car trouble
Ganga fyrir réttlæti!
Dauðasyndin ógurlega
Buxnaleitin ógurlega
Siðfestutryllingur
Má ekki míííííínútu missa!
Endalausi farsinn
Mér datt í hug að eina ráðið væri að skella sér bara á þing, maður fengi væna summu í budduna í hverjum mánuði, plús sumarfrí, páskafrí og jólafrí o.s. frv.... Og fengi svo að horfa á farsa á hverjum degi. Eini gallinn á gjöf Njarðar væri sá að flestir Íslendingar myndu átómatískt sjá rautt þegar ég opnaði á mér munninn og reyna að rakka mig niður í skítinn fyrir hvert orð... Maður getur nú alveg hugsað sé verri díl.
En nei ég yrði áreiðanlega geðveik innan skamms svo ég hætti snarlega við það. En endemis bull og vitleysa er þetta.. Vill fólk virkilega fá Sjálfstæðisflokkinn aftur til starfa? ...Og ef Icesave er virkilega forsenda fyrir því að ríkisstjórnin þurfi að víkja þá er rétt að minna á að það var stjórn Geir Haarde sem ákvað það í kjölfar þess að ríkið tók yfir Landsbankann að hrifsa fé handa innistæðueigendum hérlendis úr þrotabúi gamla bankans en ekki fyrir erlenda eins og frægt er orðið. Svo grófar þóttu þær aðgerðir að bresk stjórnvöld ákváðu að setja hryðjuverkalög á okkur enda þurftu þeir að redda sínum þegnum sjálfir á meðan Íslendingar sátu einir um þrotabúið (who cares um einhver útlendinga, Ísland er jú stórasta land í heimi) en audda fórum við bara í fýlu og fannst Bretar vera með óþarfa tuddaskap við okkur og mynduðum börn okkar og gamalmenni með skilti til að sýna fram á að við sko ekkert hryðjuverkamenn.
Svo fáum við tækifæri til að bæta úr þessari framkomu okkar en þá segjum við neibb, ekki fyrst við þurfum að borga vexti og taka ábyrgð á gjörðum okkar. Og nú rís fullt af fólki (það er að segja ef fleiri en einn nenna að lesa þetta, hæ mamma) upp á afturlappirnar og segir: Hey þetta voru ekkert gjörðir okkar, við höfðum ekkert með þetta að gera. En þannig virka jú lýðræði, allavega síðast þegar ég gáði, að þau stjórnvöld sem fólkið kýs starfa í nafni almúgans. Og frekar órökrétt að ætlast til þess að maður fái að njóta góðs af sterkri krónu í góðærinu en vilja þvo hendur sínar af skuldum ríkisins í kreppunni.
Ein hringlandi ringluð
Aldurinn færist yfir
On the road again
Here I go again
Máttur tónlistarinnar
Hugleiðingar um genatísk bútasaumsteppi
Furðuleg byrjun á nýju ári
Hallelúja!!
Jól í svartnættinu
Jólunum er alveg sama um þessar raunir mínar og nálgast óðfluga. Nú eru 15 dagar til jóla. Það eru bara tvær vikur! Almáttugur og í staðinn fyrir að bretta upp ermarnar og ljúka eitthvað af þeim verkefnum sem hanga yfir manni eins og þrumuský í teiknimyndasögu þá bara verður maður sybbnari og sybbnari og ónæmari fyrir kaffiþambinu, og hvað gera bændur þá?!... Nánar
